
Gömul leikföng búa yfir töfrum og endurspegla samfélagið eins og það var á hverjum tíma. Börn fræðast um fortíðina og heillast af því að skoða gömul leikföng, og fullorðnir hafa gaman af því að líta til fortíðar og leyfa nostalgíunni að taka völdin. Í fjölskyldunni er safn gamalla leikfanga sem möguleiki væri að lána í verkefnið auk þess sem ýmis skemmtileg leikföng leynast án efa í fórum bæjarbúa sem væru tilbúnir að lána þau til safnsins. Auk bæjarbúa gæti safnið dregið að ferðamenn með börn.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation