
Setja upp skautasvell líkt og Nova svellið sem sett er upp á Ingólfstorgi.
Skemmtileg afþreying fyrir íbúa yfir vetrartímann og myndi auka stemmningu og aðsókn Kópavogsbúa að menningarmiðju í kringum jól. Svæðið gæti nýst fyrir aðra starfsemi á sumrin en með þessu aukast líkur á heilbrigðri samveru, útiveru og skemmtun fyrir börn og fullorðna.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation