Tónleika- og leikhúsaðstaða

Tónleika- og leikhúsaðstaða

Það vantar stórt svið (fyrir Skólahljómsveitina, barnakóra, stórar leiksýningar o.s.frv.) í bæinn. Myndi vilja endurhanna Hálsatorg þannig að hægt væri að sýna þar á meðan bærinn (vonandi) byggir slíkt hús.

Points

Eins og staðan er núna þá heldur Skólahljómsveit bæjarins tónleika í Háskólabíó, Leikfélag MK sýndi sína síðustu sýningu í Gaflaraleikhúsinu (sem nú er búið að loka), barnakórar bæjarins geta aldrei haldið sameiginlega tónleika eða sungið með Skólahljómsveitinni. Með stóru sviði (og stórum sal) væri hægt að gera þetta allt saman, halda Skrekk í Kópavogi og margt fleira. Þörfin er mikil.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information