Opið svæði

Opið svæði

Opið svæði sem nýtist íbúum nærliggjandi húsa sem hafa aðgang að því í gegnum eigin garða en ekki verða gerðir sérstakir göngustígar inn á svæðið. Þarna má planta trjám og byggja upp skjól án þess að skipuleggja svæðið sérstaklega að öðru leyti. Íbúar nærliggjandi húsa gætu tekið að sér að fóstra þennan blett og halda honum snyrtilegum.

Points

Fjölmörg útivistarsvæði eru í næsta nágrenni án þess að opna fyrir umferð almennings í gegnum þetta litla svæði. Einnig er mjög gott leiksvæði í næsta nágrenni á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs og liggja góðar stígatengingar þangað bæði frá Dimmuhvarfi og Melahvarfi.

Áratugalöng hefð er fyrir því að þessi blettur sé nýttur af íbúum nærliggjandi húsa og hefur verið sátt meðal íbúa um notkun þessa friðsæla svæðis við baklóðir okkar. Íbúar hafa haldið svæðinu snyrtilegu, plantað trjám og eins hefur hestum verið beitt á afmörkuðum hluta. Þetta skapar róandi, kyrrlátt og asalaust andrúmsloft sem við teljum eftirsóknarvert og ástæða þess að við veljum að búa í „sveit í borg“.

Já takk við trjám en nei við göngustígum!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information